|
|
|||
Heimilis fólkið í Egilsstaðakotióskar vinum og velunnurumgleðilegs ársþökkum samveru stundirog viðskipti árinu.Basil- og hunangshjúpuð lambakóróna með kumminbættum augnbaunum og basilpestóiLýsingOkkar frábæra lambakjöt hentar við ýmis tækifæri og er sannarlega kjörið hráefni í veislumat. Hér er uppskrift að girnilegum rétti sem sómar sér vel í hvaða veislu sem er. Höfundur. Úlfar Finnbjörnsson, matreiðslumeistari. Hráefnií stuttu máli
600 g lambahryggur með rifjum, fitulaus
2 msk. hunang 2 msk. basil, smátt saxað 2 hvítlauksgeirar, pressaðir 1/3 tsk. salt 1/2 tsk. svartur nýmalaður pipar 2 dl rasp 2 msk. steinselja, smátt söxuð LeiðbeiningarHitið ofninn í 190°C. Berið fram með augnbaununum, basilpestói og grænmeti. Síðustu lömbin fara frá mér í slátrun næstkomandi fimmtudag, 27. okt. Það þíðir að ekki verður hægt að panta kjöt eftir miðvikudagskvöldi 26. okt því að ég hef ekki aðstöðu til að frysta kjöt. Endilega farið inn á kotalamb-panta kjöt og kynnið ykkur þá flokka sem ég bíð upp á. Við í Egilsstaðakoti tókum þátt með öðrum ferðatengdum aðilum að útbúa dvd disk. Diskurinn heitir North Atlantic Jewel – Iceland – Árnes County. Hægt er að kaupa diskinn hjá okkur á 3000kr tilvalinn gjöf. Á heimasíðunni www.lambakjot.is er hægt að finna margar uppskriftir af ljúffeingum lambakjötsréttum s.s. Lambakarrí – með hrísgrjónum og nanbrauðiLýsingNýtum kalda afganga í exótíska rétti og tilraunir með bragð og krydd. hér er brugðið á leik með indverskum hætti. Skammtar
4
2 laukar, 1 gult epli, 2 hvítlauksgeirar, 2 gulrætur
½ tsk kanill 2 tsk karrí ½ tsk paprika ½ tsk engifer 250 ml kókosmjólk 1 kóríander búnt- ferskt lambakjöt – t.d. afgangur af fituhreinsuðu súpukjöti,læri eða fille, lund eða annað sem til fellur. LeiðbeiningarSkerið lauk, hvítlauk og gulrætur niður eftir smekk. Gyllið gulrætur og lauk vandlega á pönnuni með olíu, að því loknu setjið eplin og bætið svo þurrkryddi út í og látið malla í 2-3 min við vægan hita. Bætið þá kjötinu út í og steikið í 1-2 mín. Hellið þá kókosmjólkinni út í og látið malla. Saltið að smekk. Saxið ferskt kóríander og stráið yfir áður en framreitt. Berið fram með hrísgrjónum og nanbrauði. Hér má sjá sýnishorn af því gæða kjöti sem Egilsstaðakot hefur upp á að bjóða undir vörumerkinu Kotalamb. Sést hér glögglega hversu góð holdfylling er í skrokkunum sem gerir það að verkum að viðskiptavinir eru að fá meira kjöthlutfall í hverju kílói. Lömbinn ganga á fjalli og eru eftir það á fjölbreittu fóðri sem tryggir að lömbinn eru í góðu standi þegar þeim er slátrað, það gerir það að verkum að kjötið er safaríkt og meirt. Flestar kindur í Egilsstaðakoti eru keyrðar í afrétt í byrjun júlí ár hvert. Í ár voru 515 hausum keyrt í afréttinn sem er staðsettur upp með Stóru-Laxá að austanverðu og nær hann allaleið inn að Hofsjökli. Það gerir það að verkum að einu lengstu göngur á landinu eru hjá okkur. Fyrstu menn sem fara af stað í smalamensku fara ríðandi af stað á miðvikudagi 10 dögum fyrir réttir, þeir fara og smala með skeiðamönnum og Gnúpverjum innvið Hofsjökul og er sú leit kölluð Sandleit enda ekki mikil gróður að sjá á stórum svæðum en það þarf samt að fara yfir svæðið því að það geta verið eh flökku kindur á ferð. Næstu menn fara af stað á föstudagi og hitta þeir sandleitara og smala þeir norðurleit saman á sunnudagi. Þá fara fitjara af stað á mánudagi úr réttum og tangamenn á þriðjudagi. fitjarar hitta norðurleitara og smala með þeim á miðvikudagi frá Sultarfit niður í Hallarmúla en tangamenn smala samsíða þeim og hittast allir síðan í hallarmúla á miðvikudagskvöldi og eru þá komnir saman 20 smalar að minstakostu en oft eru eh aukamenn, flest hafa verið 26 á fjalli fyrir flóamenn. Síðasta smaladaginn er smalað niður í Skáldabúðir á safngerði sem er þar. Á föstudegi er síðan rekið niður Gnúpverjahrepp og niður í Reykjaréttir og réttað þar á laugardegi. Flestir keyra síðan féð heim á vögnum úr rétunum en þó eru nokkrir sem reka heim, það eru þá helst þeir sem fara stutt. Í tilefni af afmæli Christiane Grossklaus nágranna okkar á Egilsstöðum 1 mánudaginn 8.ágúst var slegið upp heljarinnar partýi. Afmælið byrjaði á því að tekið var á móti Christiane með fánareið fjögurleitið og síðan voru skemmtiatriði og göngur sem endaði síðan með alvöru hlöðuballi í hlöðunni á Egilsstöðum 1. Laugardaginn 7.maí komu 10 hressar stelpur í fjárhúsinn tilgangurinn var að gæsa eina vinkonuna. Laugardaginn 30. apríl hófst sauðburðurinn í Egilsstaðakoti. sauðburðurinn fer vel af stað, 25 ær eru bornar þar af 4 gemlingar og 45 lömb eru kominn. Í tilefni af því verður þeim boðið í heimsókn sem hafa keypt kjöt af okkur síðast liðið haust á sunnudaginn 8. maí á milli 14-16. |
|||
|
Copyright © 2012 Egilsstaðakot.is - All Rights Reserved |
|||